Box800 er persónuleg æfingastöð sem einblínir á að auka lífsgæði fólks í samfélaginu. Með þekkingu og reynslu bjóðum við uppá gæða þjálfun þar sem áhersla er lögð á faglegt og hlýtt umhverfi, gleði og gott utanumhald.

Vertu með okkur

Hvað er í boði?

  • Skemmtilegir og fjölbreyttir tímar þar sem áhersla er lögð á æfingar sem reyna á fætur, rass og kvið.

    Tíminn er í 60 mínútur í senn.

  • Fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar undir leiðsögn þjálfara. Æfingarnar er ávallt hægt að aðlaga eftir þörfum hvers og eins og hentar því öllum. Notast er við fjölbreyttan búnað, má þar nefna þrektæki, lyftingastangir, ketilbjöllur, handlóð, sippubönd og fleira.

    Tíminn er 50 - 60 mínútur í senn.

  • Námskeiðið er tilvalið fyrir byrjendur sem og lengra komna sem vilja æfa skynsamlega undir handleiðslu reyndra þjálfara. Auðvelt er að aðlaga æfingarnar og hver og einn getur unnið á sínum hraða. Lögð er áhersla á að auka styrk, úthald, liðleika og jafnvægi. Markmið námskeiðsins er að taka góða æfingu í góðum félagsskap og líða vel.

    4 vikna námskeið, tímar á mánudögum og fimmtudögum kl.20:00 - 20:50.

    *meðlimir hafa einnig aðgang að opnum tímum stöðvarinnar.

  • Námskeiðið er tilvalið fyrir byrjendur sem og lengra komna sem vilja æfa skynsamlega undir handleiðslu reyndra þjálfara. Auðvelt er að aðlaga æfingarnar og hver og ein getur unnið á sínum hraða. Lögð er áhersla á að auka styrk, úthald, liðleika og jafnvægi. Markmið námskeiðsins er að taka góða æfingu í góðum félagsskap og líða vel.

    4 vikna námskeið, tímar á þriðjudögum kl.18:40 og á fimmtudögum kl.16:30.

    *meðlimir hafa einnig aðgang að opnum tímum stöðvarinnar.

  • Námskeiðið er byggt á þörfum mæðra og þær kynntar fyrir öllum þeim hreyfingum sem eru í Box800. Markmið námskeiðsins er að æfa í góðum félagsskap, líða vel og undirbúa sig undir opna tíma að loknu Mömmuhreysti.

    Tímarnir eru á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl.10:30.

    Mömmuhreysti eru 4 vikna námskeið.

    Takmarkað pláss í boði.

  • Tímar þar sem áhersla er lögð á að bæta tækni í ólympískum lyftingum. Hentar byrjendum sem og lengra komnum.

    Tíminn er í 60 mínútur í senn.